Hending - Heimasíða táknmálsfræðinema
04.02.2008 16:23:39 / hending

Partý!!!

Við á öðru árinu ætlum að halda matarboð heima hjá Vilborgu. Eftir matinn, um klukkan tíu, verður húsið síðan opið fyrstuársnemum sem eru í stuði fyrir partý!! :) Þetta húllumhæ varur haldið laugardaginn 9. febrúar. Þið fyrstuársnemar sem hafið áhuga á að mæta, sendið Vilborgu email á vilborgf@gmail.com til að tilkynna komu ykkar og fá upplýsingar um heimilisfang. Eins og skáldið sagði: Stanslaust stuð að eilífu!!! Kveðjur, stjórnin (Vala).

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 19:22:07 / hending

Mikið um að vera hjá heyrnarlausum!

Nokkrir viðburðir verða hjá Félagi Heyrnarlausta á næstunni. Laugardaginn 16. febrúar er árshátíð Félags heyrnarlausra á Kaffi Reykjavík. Hægt er að borga fyrir mat og ball eða bara ball. Upplýsingar um þetta er á www.deaf.is Miðvikudaginn 20. febrúar er svo félagsvist í Félagi Heyrnarlausra og byrjar hún klukkan 20. Loks ber að nefna bingó sem haldið verður í félaginu fimmtudaginn 13. mars, einnig klukkan 20. Fjölmennum!!! Bestu kveðjur, stjórnin (Vala)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 07:59:59 / hending

Smettisskrudda

Undirrituð hefur nýlega uppgötvað smettisskruddu (betur þekkta sem facebook) og stofnað hópinn Hendingu. Ég hvet því alla sem hafa aðgang að smettisskruddunni að ganga í þann hóp og ykkur hin sem ekki hafið aðgang, þá er smettisskruddan hið nýja myspace. Mjög sniðugt. Þetta er góður vettvangur til að stunda spjall, koma skilaboðum til hópsins og jafn vel setja upp myndir úr félagslífinu... ef eitthvað verður.

Kv.Stjórnin (Vala)


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 19:03:45 / hending

Partý?

Okkur langar svolítið til að halda partý. Þetta hefur blundað í okkur annarsársnemum síðan í byrjun annar og á föstudaginn er ástæða til að gleðjast (eða öllu heldur afsökun ;) ) því að einn í bekknum á afmæli og þar að auki verður verkefnavika á enda. Svo er líka tilvalið að hrista okkur saman áður en við FJÖLMENNUM á björkvöld DÖFF-félagsins. Það verður haldið 10. nóvember og verður Hollúvúddþema. Fyrir þá sem ekki vita, þá kostar 500kall inn nema maður sé í búningi. Mig vantar tillögur að stað fyrir skemmtunina, heimahús væri ákjósanlegt. Annars var komið með þá hugmynd að halda bjórkvöld og bjóða Döffurunum með, þannig værum við ekki alltaf í heimsókn hjá þeim, heldur þau hjá okkur. Þá er kannski málið að leigja efrihæð einhversstaðar nema einhver eigi þeim mun stærri íbúð! Endilega, komið með ykkar innslag um þetta. Kv. Stjórnin (Vala)

» 29 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 09:54:30 / hending

Fundur

Fimmtudag í síðustu viku var haldinn aðalfundur. Ekki var vel mætt en ný stjórn er í myndun, enn vantar þó gjaldkera.

Formaður er enn Sigrún Vala Þorgrímsdóttir, Ritari, sem gegnir einnig varaformennsku, er Elísa Guðrún Brynjólfsdóttir og skorarformaður er Hafdís María Tryggvadóttir.

Þar sem við erum allar á öðru ári höfða ég til fyrstaársnema til að bjóða sig fram í stöðu gjaldkera.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 17:53:05 / hending

Aðalfundur

Sælar allar. Ætlunin er að halda aðalfund Hendingar. Þar sem að ég er ein eftir í stjórninni hef ég ákveðið að halda hann á fimmtudaginn næstkomandi. Ég sá á stundatöflum fyrsta og annars árs að klukkan 11:40 hentar ágætlega. Við hittumst á fyrstu hæð í Odda á slaginu. Dagskráin verður á þennan veg: Kosið í stjórn Hugsanlegt samstarf okkar við önnur nemendafélög rædd og næsta björkvöld. Hittumst hressar og kátar við auglýsingatöfluna á fyrstu hæð í Odda kl 11:40 á fimmtudaginn. Kv stjórnin (Vala)

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 12:42:59 / hending

Dagur heyrnarlausra

Döff-dagurinn er laugardaginn 22. september. Dagskrá verður allan daginn (frá hálf eitt) í Öskju eftir að gengið hefur verið frá Hlemmi og niður á Ingólfstorg. Gangan leggur af stað kl 11. Föstudagskvöldið 21. sept. verður svo björkvöld á Players og byrjar gamanið klukkan átta. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að mæta og sýna samstöðu, bæði á bjórkvöldið og á dagskrána á laugardeginum.  Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fleira finnast á heimasíðu félags heyrnarlausra: www.deaf.is

 

Kv. Stjórnin (Vala) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 18:25:54 / hending

Nýtt skólaár

Já, þá er nýtt skólaár komið í gang. Þær sem byrjuðu fyrsta ár í fyrra sameinuðust þeim sem þurftu að bíða eitt ár og erum við 15 í bekknum. Við bjóðum fyrsta ár velkomið í liðið og vonum að sem fæstar hætti :P Mér var að detta í hug að hér gætum við haft skiptibókamarkað. Þið sendið mér (Völu) bara póst á sth60@hi.is með upplýsingum um bækur og verðhugmyndir auk símanúmers.

Svo vona ég að það verði kröftugt félagslíf í vetur, við gætum til dæmis haldið árshátíð, og það er um að gera að mæta á björkvöld hjá félagi heyrnarlausra, því það er ein besta æfing sem hægt er að fá. Það þarf að halda nemendafélagsfund og ræða hugsanlega samvinnu við önnur nemendafélög, því fólk virðist áhugasamt um að ganga í lið við okkur. Einnig þarf að skipa í nýja nefnd, því hún er orðin nokkuð fámenn eftir úrfall sumarsins. Eitt í viðbót: Þið sem viljið láta skrá heimasíðu eða breyta tengli á heimasíðu (bloggi, myndasíðu...whatever) sendið mér línu og ég redda því eins fljótt og auðið er.

 

Kv. Stjórnin (Vala) 


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 13:17:35 / hending

Sumarið er tíminn

Jæja kæru samnemendur. Það er að koma að því, prófunum fer að ljúka, allavega hjá fyrstaársnemum, og við getum ekki beðið eftir að komast í sumarfrí (ekki satt?). Eftir því sem ég best veit munu 7 túlkar útskrifast í vor og óska ég þeim innilega til hamingju :haha: .  Laugardaginn 19. maí verður haldið bjórkvöld í félagi heyrnarlausra. Þemað í þetta sinn er "kynin skipta um hlutverk". Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og kveðja veturinn með gleði og glaum.

Kveðja, Stjórnin (Vala) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 15:39:27 / hending

Engin árshátíð

Jæja, þá er það komið á hreint. Það verður engin árshátíð. Við vonum að við getum gert eitthvað saman áður en skólaárið er líðið, það verður bara að koma í ljós. Ég sendi öllum sem ég hef netfangið hjá tölvupóst um þetta, þannig að allir ættu að vera vel uplýstir.

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 20:30:21 / hending

Árshátíð...

Sæl öll
Við í stjórn nemendafélags táknmálsfræðinema höfum setið sveittar við plön á árshátíð félagsins.
Hún verður haldin í sal Ásatrúarfélagsins að Síðumúla 15 föstudaginn 13. apríl. Mæting er um sjö.
Pælingin er þessi: Hlaðborð. Hver og einn (eða hvert par ef maki kemur með) mætir með rétt að
eigin vali (fyrir ekki meira en 1000 kr) og eigin drykk, áfengan eða ekki. Kostnaður á mann auk
matarins eru þúsund krónur.
Þannig er að í salnum er enginn ofn en það verður örbylgjuofn á staðnum. Ef það hentar ekki
matsedlinni að hita réttinn upp í honum mælum við með því að mæta með kaldan rétt eða græju
til að halda honum heitum. Síðasti dagur til þess að skrá sig á árshátíðina er 4. apríl og síðasti
dagurinn til að greiða fyrir hana er 8. apríl.
Við viljum minna á að skrifa nafn greiðanda og fjölda í skýringar.  
Reikningsnúmer félagsins er: 0303 - 13 - 119785
Skráningin fer fram á þessu póstfangi: runavala@gmail.com
Svo vonum við bara að sem flestir sjái sér fært að mæta og að þetta verði geggjað fjör.:haha:
Kærar kveðjur,
Stjórnin

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 12:41:19 / hending

Ný stjórn

Ný stjórn nemendafélagsins hélt fund í hádeginu í dag, 9. mars. Ýmislegt var rætt varðandi árshátíð, fjáröflun og skorarfund. Ekkert er alveg ákveðið eins og stendur, frekari upplýsingar verða uppfærðar síðar. Ný stjórn Hendingar er:

Formaður: Sigrún Vala þorgrímsdótir

Gjaldkeri: Elva Díana Davíðsdóttir

Ritari: Þórdís Anna Garðarsdóttir og

Skorarformaður: Steinunn Rögnvaldsdóttir.

Yfir og út. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 20:30:24 / hending

Síðan komið í gagnið á ný

Sæl öll. Ég fékk notendanafn og lykilorð hjá honum Edda og nú er málið að vera aktív og blogga. En þá þarf líka að hafa eitthvað til að blogga um. Stelpur á fyrsta ári og þeir sem ekki eiga link hér á túlkaárinu og árinu í biðstöðu, endilega sendið mér upplýsingar svo að ég geti sett þær inn (blogg, heimasíða, myndasíða, hvað sem þið viljið linka á héðan). Emailið mitt er runavala@gmail.com. Svo er bara að vera virk. Ég var að hugsa um að fyrsta verkefnið gæti verið að koma með tillögur um hvernig þið getið hugsað ykkur að græða smá pening svo að við getum gert eitthvað skemmtilegt, t.d. halda árshátíð eða eitthvað. Hvernig væri það? Bestu kveðjur, Vala á fyrsta ári.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 16:09:55 / Eddi

BJÓRKVÖLD !!!

Nú er búið að skipuleggja bjórkvöld fyrir táknmálsfræðinema, maka og döff. Vonandi koma allir og taka með góða skapið.

16. nóv klukkan 20.00
Hvar???  Sólon efri hæð

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 17:41:31 / Eddi

Viðtalið sýnt aftur

Jæja gott fólk, nú er svo komið að döff-sýningin Viðtalið verður sýnt aftur þann 19. október. Sviðið er orðið stærra og tekur fleiri í sæti í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Ég hvet alla til að hringja í 555-2222 og panta sér miða hjá Ólöfu í leikhúsinu. Þetta er einstakt lokatækifæri til að sjá þessa frábæru sýningu á góðu verði. Miðinn er ódýrari en áður.

Kv.
Eddi


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5